Eftirsóttasta staða íslenskrar stjórnsýslu: Björn Ingi slær samsæriskenningu útaf borðinu

Mikill fjöldi sótti um embætti forsetaritara en listi með nöfnum umsækjenda var birtur á heimasíðu forsetaembættisins fyrr í dag.

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, segir í pistli á heimasíðu miðilsins að embættið sé eitt hið eftirsóttasta í íslenskri stjórnsýslu. Að hans sögn hafi samsæriskenning verið á lofti um hver yrði næsti forsetaritari.

„Fyrirfram var töluverð spáð og spekúlerað í mögulega eftirmenn Örnólfs og sagði sagan að Friðjón Friðjónsson í KOM væri líklegur kandídat. Friðjón er einn helsti hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins og fv. aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins, en jafnframt náinn trúnaðarmaður forsetans og lykilmaður í velheppnaðri kosningabaráttu hans árið 2016. Þær samsæriskenningar má þó leggja á hilluna, því Friðjón er alls ekki meðal umsækjenda um starfið,“ skrifar Björn Ingi.

Hann vakti síðan athygli á skrifum sínum með færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann sló samsæriskenninguna útaf borðinu.

Fjölmörg þekkt nöfn eru í hópi umsækjenda en þar má nefna Guðfríði Lilju Grétarsdóttur fv. þingmann VG og forseta Skáksambands Íslands, Bergdísi Ellertsdóttur, sendiherra Íslands í Washingto, Önnu Sigrúnu Baldursdóttur aðstoðarmann forstjóra Landspítalans, Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi aðstoðarmann utanríkisráðherra, Margréti Hallgrímsdóttur fyrrverandi þjóðminjavörð, Jóhann Benediktsson fyrrverandi sýslumann og Guðjón Rúnarsson fyrrverandi ramkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja.

Egill Helgason, fjölmiðlamaður, blandar sér síðan í umræðurnar. „Manni sýnist að Bergdís hljóti að vera þarna fremst meðal jafningja. Með traustan og farsælan feril í utanríkisþjónustunni.“ Egill bætir síðan við að varla keppi nokkur maður við konu sem hafi verið sendiherra í Washington og Brussel.

Örnólfur Thorsson, sem gegnt hefur embættinu í rúm 15 ár, lætur af störfum þann 1. mars næstkomandi en mun vera eftirmanni sínum innan handar fyrst um sinn.

Þá er hægt að leggja eina samsæriskenninguna enn til hliðar.

Posted by Björn Ingi Hrafnsson on Þriðjudagur, 12. janúar 2021