Lögmannafélagið hefur áminnt lögmanninn Þorbjörgu Ingu Jónsdóttur vegna ummæla um holdris í sjónvarpsfréttum í fyrra.
Þorbjörg Inga er ein þeirra sem skipar nefnd um eftirlit með störfum lögreglu sem fjallaði nýverið um Ásmundarsalarmálið. Nefndin var ekki sátt við ummæli tveggja lögreglumanna sem komu í Ásmundarsal þetta örlagaríka Þorláksmessukvöld, en meðal viðstaddra á sölusýningunni var Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Nefndin,sem telur nokkra Sjálfstæðismenn, taldi ummæli lögreglumanns, sem tekin voru upp á búkmyndavél, um „framapotara“ í Sjálfstæðisflokknum vera ámælisverð. Formaður nefndarinnar sagði þau fordómafull.
Þorbjörg Inga á einnig sæti í fjölskyldunefnd í bæjarstjórn Mosfellsbæjar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. DV greinir frá því að hún hafi verið áminnt af Lögmannafélaginu vegna ummæla sem hún viðhafði í sjónvarpsviðtali á síðasta ári vegna forsjármáls.
Telur Lögmannafélagið að hún hafi farið fram með viðkvæmar persónuupplýsingar um heilsufarsvandamál föður sem komu fram í lokuðu þinghaldi þar foreldrar barns tókust á um forsjá, og með því brotið gegn lögum um meðferð einkamála sem og persónuverndarlögum. Þá sé háttsemi hennar ámælisverð.
Fréttin birtist á Stöð 2 í september í fyrra. Þar kom fram að föður hefði verið dæmd full forsjá barns í héraðsdómi en báðir foreldrar metnir hæfir til að fara með forsjá. Var sagt í fréttinni að maðurinn hefði játað í lokuðu þinghaldi að hann ætti auðvelt með að fá holdris.
„Það var eitthvað sem faðir ítrekað hafði sýnt og hann kannaðist við að honum oft risið hold nálægt stúlkunni, þá hafði matsmaður kallað eftir mati sérfræðings í þvagfæraskurðlækningum um það væri eitthvað sem gæti alveg gerst af líkamlegum ástæðum en þýddi ekki endilega að það væri um barnahneigð eða barnagirnd að ræða,“ sagði Þorbjörg Inga.