Hin umdeildu eftirlaunalög, sem sett voru á í forsætisráðherratíð Davíðs Oddssonar árið 2003, voru felld úr gildi árið 2009. Þau kváðu á um að fyrrverandi ráðherrar, sem setið höfðu lengi, gætu farið á eftirlaun við 55 ára aldur, auk þess sem eftirlaunaréttindi forseta Íslands, hæstaréttardómara, ráðherra og þingmanna voru mun meiri en hins almenna borgara.
Meðan að lögin voru í gildi þáðu þó margir greiðslur samkvæmt þeim og greinir Kjarninn frá því að samkvæmt svari Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hafi 185 fyrrverandi þingmenn eða varaþingmenn, þegið lífeyrisgreiðslur upp á 479 milljónir árið 2018 og fyrrum ráðherrar, sem þáðu alls 129 milljónir samkvæmt réttindum sem þeir áunnu sér milli áranna 2003 og 2009, voru alls 41 talsins. Enginn þingmaður greiðir iðgjald til sjóðsins af föstu starfi á vegum hins opinbera, en fimm hafa nýlega greitt iðgjald vegna tilfallandi verkefna eða nefndarstarfa. Einn fyrrverandi ráðherra greiðir iðgjald vegna fasts starfs hjá hinu opinbera, en fær ekki full eftirlaun
Nánar á