Eftirlæti ameríku á hvíta tjaldinu

Í kvöld verður ævisaga Mary Pickford sögð í kvikmyndaþættinum Hvíta tjaldið. Mary Pickford var á tíma þöglu myndanna þekktasta og valdamesta konan í Hollywood og varð þekkt sem \"eftirlæti Ameríku\" (America`s Sweetheart). Hún var umvafin dýrðarljóma Hollywood en skömmu eftir að talmyndin umturnaði kvikmyndaiðnaðinum leyddist Mary útí drykkjusýki og þunglyndi sem hrjáði hana langan tíma á eftir. 

Fylgist með ótrúlegri sögu Mary Pickford á Hvíta tjaldinu á Hringbraut kl. 21:30 í kvöld.