Eftirmynd af sænska umhverfisverndarsinnanum, Gretu Thungberg, var hengd undir brú í Róm í dag. Brúin er skammt frá Fiumicino flugvellinum í Róm. Á brúðunni var skilti sem á stóð á ensku: „Greta er ykkar guð.“
Slökkvuliðsmenn, ásamt lögreglu fjarlægðu brúðuna. Yfirvöld í Róm líta atburðin mjög alvarlega og sagði Virginia Raggi, borgarstjórinn í Róm, að gjörningur sem þessi væri til skammar. Hann sagði einnig að aðgerðir borgarinnar til að berjast gegn loftlagsbreytingum myndu ekki breytast þrátt fyrir svona gjörning. Margir ítalskir stjórnmálamenn hafa einnig fordæmt gjörninginn.
Hatur gagnvart Gretu hefur vaxið undanfarið og hafa lögregluyfirvöld bæði í Bandaríkjunum og Kanada borist ábendingar um hótanir um ofbeldi gegn 16 ára Gretu Thungberg. Greta er nú á ferðalagi í Bandaríkjunum.