Efri deild mde tekur landsréttarmálið fyrir

Efri deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu hefur ákveðið að taka hið svo­kall­aða Lands­rétt­ar­mál fyr­ir. Alls munu fimm dóm­arar taka málið til umfjöllun­ar. Kjarninn greinir frá.

Dómur MDE féll í málinu þann 12. mars síð­­ast­lið­inn og daginn eftir ákvað Sigríður Á. Andersen að stíga til hliðar sem dómsmálaráðherra. Í apríl síðastliðnum ákvað íslenska ríkið svo að áfrýja niðurstöðu MDE til efri deildar dómsins, sem hefur nú ákveðið að taka málið fyrir.

Í dómnum fengu Sigríður og Alþingi á sig áfell­is­­­­dóm fyrir það hvernig staðið var að skipun 15 dóm­­­­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017. 

MDE komst að þeirri niðurstöðu að skipun Sig­ríðar á fjórum dómurum við Lands­rétt hafi brotið gegn 6. grein mannréttindasátt­mála Evrópu. Ís­lenska ríkið væri því bóta­skylt í máli sem Guðmundur Andri Ástráðs­son höfðaði gegn því og fór með fyrir Mann­réttinda­dóm­stól Evrópu. Alþingi hlaut áfellisdóm fyrir að hafa kosið um skipan dóm­­­­ar­anna allra í einu í stað þess að kjósa um hvern þeirra fyrir sig. 

Ástráður Haraldsson, Jóhannes Rúnar Jóhannsson, Jón Höskuldsson og Eiríkur Jónsson, voru á lista hæfnisnefndar yfir hæfustu umsækjendur vegna skipan dómara við Landsrétt en voru hvergi sjáanlegir á lista Sigríðar þegar kom að skipan 15 dómara við Landsrétt. Í þeirra stað skipaði Sigríður þau Arnfríði Einarsdóttur, Ásmund Helgason, Jón Finnbjörnsson og Ragnheiði Bragadóttur sem dómara, án þess að rann­saka og rök­­­­styðja þá ákvörðun með fullnægjandi hætti að mati MDE.

Guð­mundur Andri hafði verið dæmdur í 17 mánaða fangelsi í Landsrétti fyrir ýmis brot. Honum þótti Arnfríður Einarsdóttir, sem Sig­ríður skipaði sem dómara við Lands­rétt, vera vanhæf þar sem hún hafi ekki verið á meðal fimm­tán hæfustu um­sækj­enda á lista hæfnis­nefndar. Guðmundur Andri hafi því ekki hlotið rétt­láta máls­með­ferð, en 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu fjallar um rétt einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. MDE féllst á þessi málsrök.