Efna til vatnsviku - vilja vekja athygli á mengun af völdum plasts

Farfuglar, samtök farfuglaheimila á Íslandi, efna til svokallaðrar Vatnsviku dagana 5. – 10. ágúst. Tilgangur vikunnar er að vekja athygli gesta á farfuglaheimilum hérlendis á mengun af völdum plasts og hvetja þá til að nota brúsa í stað þess að kaupa vatn í einnota plastflöskum.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá samtökunum. Þar er einnig greint frá því að tilgangurinn með Vatnsvikunni sé að benda ferðamanninum á góða íslenska kranavatnið og gildi þess að vera ábyrgir ferðamenn. Herferðin Kranavatn, sem Inspired By Iceland stendur að, var kveikjan að hugmyndinni með vatnsvikuna og var hvatinn að því að Farfuglar fóru í þessa vinnu.

Á síðasta ári vöktu Farfuglaheimilin athygli á plastpokalausa deginum sem var haldinn í júlí. Það var gert með því að gefa gestum sem komu á farfuglaheimilin þann dag taupoka. Í Vatnsvikunni munu gestir farfuglaheimilanna fá afhenta fjölnota álbrúsa sem auðvelt er að hafa með sér og fylla á hvar sem er.

„Við munum hvetja ferðamenn að nota brúsa í stað þess að kaupa vatn í einnota plastflöskum, sem enda langflestar í landfyllingu,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að 80 prósent plastflaska endi sem landfylling eða í sjónum. Einnig er greint frá því að 65 prósent af ferðamönnum segjast frekar kaupa vatn á flöskum þegar þeir eru á ferðalagi og að 79 prósent ferðamanna segjast ekki treysta vatni úr krana á þeim stöðum sem þeir ferðast til.

Meira en þrjátíu farfuglaheimili víðsvegar á Íslandi taka þátt í viðburðinum og hægt er að fylgjast með á vef Farfugla og samfélagsmiðlum farfuglaheimilanna. „Tökum höndum saman og drögum úr notkun plasts,“ segir að lokum í tilkynningunni.