Efling segir ríkið hefur þegar samið við hálaunahópa um hækkanir langt umfram lífskjarasamninginn

Stéttarfélagið Efling segir að á launatöflum í nýjum kjarasamningum félaga innan BHM leiðir í ljós að ríkið hefur þegar veitt hálaunahópum prósentuhækkanir launa langt umfram hina flötu krónutöluhækkun í svokölluðum Lífskjarasamningi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu.

Efling segir að í umræddum samningi BHM-félaga sé gefið til kynna að hækkanir á samningstímanum séu þær sömu og í Lífskjarasamningnum eða samtals 68 þúsund krónur. Efling segir að verulegar umframhækkanir hæstu launa koma hins vegar í ljós þegar launatöflur í fylgiskjölum eru bornar saman og ekki sé minnst á þessar hækkanir í samningstexta.

Umframhækkanir hærra launaðra starfsmanna samkvæmt launatöflum umræddra BHM-félaga ná til mánaðarlauna sem voru á bilinu 570 til 885 þúsund krónur fyrir undirritun samnings. Efling segir að hækkanir launa á þessu bili ganga mikla lengra en hin umsamda flata krónutöluhækkun Lífskjarasamningsins upp á 68 þúsund krónur og eru þegar hæst lætur vel á annað hundruð þúsund krónur. Í einum launaflokki innan kjarasamninga hjá BHM er um að ræða heildarhækkun upp á 110.765 kr. en það er 42.765 kr. umfram flata krónutöluhækkun Lífskjarasamningsins.

Efling segir að samanburður á launatöflunum sýna að hækkanirnar virðast hafa verið stilltar af þannig að hærra launaðir hópar fái aldrei minna en 12,5% heildarhækkun launa á tímabilinu. Þá bendir Efling á að í launatöflum BHM félaganna séu nýir og hærri launaflokkar þar sem hæstu grunnlaun fara yfir 1.270 þúsund. Svo virðist sem þeir flokkar muni einnig taka prósentuhækkunum umfram Lífskjarasamninginn.