Viðar um hópuppsagnir árna vals: „fullkomlega siðlaust athæfi“

Efling hefur sent hótelstjóranum Árna Val Sólonssyni erindi vegna þess sem stéttarfélagið kallar ólöglegar hópuppsagnir á hótelunum Capital-Inn, City Park Hotel og City Center Hotel, sem hann reki undir mismunandi kennitölum. Í bréfi frá Árna Val sem starfsfólk hótelanna átti að skrifa undir var launakjörum sagt upp, en ekki tilgreint hvað kæmi í staðinn. Þau sem ekki undirrituðu á staðnum misstu starfið.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Eflingu.

„Þetta er að okkar mati fullkomlega siðlaust athæfi,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar. „Við erum nýbúin að undirrita kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins, sem fyrirtæki Árna eru aðilar að. Þeir samningar byggja á því að hækka laun og bæta kjör fólks. Blekið er ekki þornað á samningnum þegar hann reynir svo að svíkja starfsfólk sitt um þær kjarabætur. Þar að auki er ákvæðum laga um hópuppsagnir ekki fylgt.“

Í tilkynningunni er greint frá því að í lok apríl, rétt eftir samþykkt nýrra kjarasamninga, hafi Árni Valur sent erindi á allt starfsfólk hótelanna sem hann rekur þar sem þess var krafist að það undirritaði uppsögn á starfskjörum sínum. Þau gætu valið að vera endurráðin á nýjum launakjörum, hönnuð „með það að markmiði að lækka launakostnað“. Ef þau samþykktu ekki á staðnum var það álitið jafngilda uppsögn. Kemur fram að nokkrum starfsmönnum hafi þegar verið sagt upp á grundvelli þessara afarkosta.

Í erindi sínu til Árna Vals bendir Efling á fleiri vafasöm atriði í uppsagnarbréfinu sem kunna að varða við lög, til dæmis „nýtt yfirgreiðslufyrirkomulag“ sem á að miðast við „stéttarfélagsaðild“. Einnig er bent á að þeir ráðningarsamningar sem sagt var upp hafa margir óregluleg og teygjanleg starfshlutföll, upp á til dæmis „80-100%“, sem ekki stenst ákvæði kjarasamninga.

Efling hefur veitt forsvarsmönnum umræddra hótela sjö daga frest „til að bregðast við og draga ólögmætar uppsagnir sínar til baka.“ Segir í tilkynningunni að stéttarfélagið áskilji sér allan rétt til launakrafna á hendur hótelunum fyrir hönd starfsfólks í samræmi við lög og kjarasamninga.

Árni Valur áður átt í útistöðum við Eflingu

Í tilkynningunni er einnig greint frá því að Árni Valur og framferði hans hafi áður komið við sögu Eflingar. Í október síðastliðnum uppgötvuðu eftirlitsfulltrúar Eflingar og annarra stéttarfélaga að Árni stóð í framkvæmdum við viðbyggingu á hóteli sínu City Park Hotel í Ármúla án tilskilinna leyfa. Vinnueftirlitið lokaði vinnustaðnum því þar var talin „veruleg hætta“ fyrir „líf og heilbrigði starfsmanna“. Byggingarfulltrúi ákvað líka að stöðva framkvæmdina fyrir sitt leyti vegna skorts á byggingarleyfi.

Auk þess hafi Árni Valur reynt að tálma þátttöku starfsmanna sinna í atkvæðagreiðslu þegar Efling hóf undirbúning fyrir hótelþernuverkfall 8. mars síðastliðinn. Í viðtali við Vísi útskýrði hann hvers vegna: „Ég veit að vel flestir ef ekki allir af mínum starfsmönnum vilja ekki fara í verkfall.“

Þegar kom að verkfalli þann 22. mars urðu verkfallsverðir Eflingar vitni að afleiðingum þessarar framkomu hótelstjórans. „Hann tók þar á móti okkur og starfsfólk var þar vinnandi,“ segir Ragnar Ólason, sviðsstjóri kjaramála. „Hann sagði að það kæmi okkur ekki við, þau væru ekki í Eflingu.“ Umrætt starfsfólk vann störf sem heyra undir kjarasamning Eflingar við SA og var því um verkfallsbrot að ræða.