Efling – stéttarfélag hefur sent frá sér tilkynningu þar sem nokkur atriði í tengslum við nýja kjarasamninga eru áréttuð. Þar er m.a. fullyrt að svokallaður „lífskjarasamningur“ feli ekki í sér neinar tryggingar fyrir styttingu vinnutímans hjá almennu verkafólki.
Efling telur nauðsynlegt að koma þessu á framfæri vegna umfjöllunar um framsetningu á inntaki kjarasamninga aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins varðandi vinnutímabreytingar.
Í tilkynningunni segir að „lífskjarasamningurinn“ feli í sér heimild til vinnustaðabundinna viðræðna og framkvæmdar á raunstyttingu vinnutíma gegn því að launaðir kaffitímar verði einnig afnumdir að hluta eða í heild. Sú heimild sé sambærileg eldri heimildum til afmarkaðra vinnutímabreytinga sem þegar hafi verið til staðar í 5. kafla kjarasamnings við SA, svokölluðum „Fyrirtækjaþætti kjarasamninga“.
Þá er greint frá því að nýi samningurinn feli ekki í sér að starfsfólk afsali sér réttinum til launaðra kaffitíma nema að skilyrðum ofangreinds 5. kafla sé að öllu leyti fylgt, þar með talið um ítarlegt samráð við starfsfólk, atkvæðagreiðslu og aðkomu stéttarfélags.
„Þær heimildir til styttingar vinnutímans sem nú koma inn í nýjum kjarasamningi eru aðeins lítilsháttar breytingar á skilyrtum heimildum sem þegar voru í kjarasamningi og munu ekki hafa áhrif á nema á einstaka vinnustöðum þar sem samkomulag um slíkt næst,“ segir að lokum í tilkynningunni.