„Ég get ekki neitað því að við höfum klórað okkur talsvert í kollinum yfir framsetningu borgarinnar í fjölmiðlum á tilboði hennar í kjölfar samningafundarins síðasta miðvikudag,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur á vef Fréttablaðsins.
Efling hefur boðið borginni til viðræðna á ný á forsendum yfirlýsinga Dags B. Eggertssonar í fjölmiðlum. Áður hafði Dagur B. sagt að tilboð borgarinnar væri tímamótasamningur.
„Landsmenn sem fylgdust með fjölmiðlum hafa væntanlega skilið þetta sem tilboð um minnst 110 þúsund skilyrðislausa hækkun grunnlauna Eflingarfélaga sem eru í almennum ófaglærðum störfum á leikskólum. Þetta er ekki í samræmi við það sem var kynnt fyrir okkur í herberginu,“ segir Sólveig Anna.
„En hvað sem því líður þá kjósum við að trúa því að hér sé ekki um að ræða markaðsmennsku eða fegrunaraðgerðir, heldur nýtt og endurbætt útspil af hálfu borgarinnar sem við erum tilbúin að líta jákvæðum augum. Ef það er réttur skilningur hjá okkur þá teljum við það mikilvægt skref í rétta átt.
Við bjóðum borginni að staðfesta sameiginlegan skilning á þessu og hefja við okkur viðræður á þeim grunni, þar sem jafnframt verði viðurkennt að slíkar hækkanir þurfi einnig að ná til sögulega vanmetinna kvennastarfa utan leikskólanna, eins og við höfum alltaf krafist,“ segir Sólveig.