Samninganefnd Eflingar stéttarfélags samþykkti á fundi sínum í gær að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum og á 40 hótelum á félagssvæði Eflingar á tilteknum dagsetningum. Ólíkt boðuðu verkfalli hjá hreingerningafólki á hótelum þann 8. mars munu aðeins þeir félagsmenn sem verkfallsboðunin tekur til greiða atkvæði að þessu sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Eflingar.
Í tilkynningunni, líkt og í tilkynningu VR fyrr í dag, segir að kjarasamningur Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hafi runnið út þann 31. desember 2018 og hafi viðræður um endurnýjun samnings ekki borið árangur. Deilunni hafi verið vísað til ríkissáttasemjara þann 21. desember 2018 og þann 21. febrúar hafi Efling metið það svo að viðræður hefðu reynst árangurslausar þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara.
Kröfugerð félagsins og upplýsingar um gang viðræðna er að finna á vef Eflingar, en í tilkynningunni segir að krafa Eflingar sé að hægt sé að lifa af lægstu launum.
Boðun vinnustöðvunar samkvæmt tillögu samninganefndar Eflingar myndi ná til 40 hótela og allra hópbifreiðafyrirtækja á félagssvæði Eflingar. Boðað yrði til fullrar vinnustöðvunar frá miðnætti til miðnættis á eftirtöldum dögum:
22. mars 2019
28.-29. mars 2019
3.-5. apríl 2019
9.-11. apríl 2019
15.-17. apríl 2019
23.- 25. apríl 2019
Boðað yrði til ótímabundinnar vinnustöðvunar frá og með 1. maí 2019
Smærri verkfallsaðgerðir einnig boðaðar
Að auki samþykkti samninganefndin að boðað verði til smærri verkfallsaðgerða á ofangreindum vinnustöðum á tímabilinu 18. mars til 30. apríl á þeim dögum sem falla utan fullrar vinnustöðvunar. Þær aðgerðir feli í sér að starfsmenn mæti til vinnu en felli niður einstaka verkþætti.
Bílstjórar á einkareknum strætóleiðum, sem Efling segir starfa undir miklu álagi og verða fyrir ítrekuðum brotum á kjarasamningi, hafa lagt til fargjaldaverkfall sem hefst 18. mars. Þetta verkfall yrði viðbót við hefðbundnar vinnustöðvanir bílstjóra Eflingar.
Hótelstarfsfólk mun einnig hætta hluta starfa sinna af stigvaxandi þunga. Til að mynda munu þau hætta klósettþrifum og leggja niður störf tengd morgunverði þar til ótímabundið verkfall hefst á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Þessar aðgerðir eru sömuleiðis til viðbótar við hefðbundnar vinnustöðvanir sem eru samræmdar með VR.