Engin gögn liggja því til grundvallar að starfsmenn sem unnu hjá Eldum rétt hafi verið látnir sæta ósæmilegri meðferð eða brotið gegn réttindum þeirra, eins og látið er liggja að í tilkynningu Eflingar. Þetta kemur fram á vef mbl.is
Málið snýst um laun fjögurra starfsmanna sem unnu hjá Eldum rétt í gegnum starfsmannaleiguna Menn í vinnu.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eldum rétt í kjölfarið á því að Efling – Stéttarfélag greindi frá því í gær að fyrirtækið hefði hafnað sáttatilboði stéttarfélagsins á fundi á föstudagskvöld.
Í tilkynningu Eldum rétt segir hins vegar að Efling hafi hafnað öllum tillögum Eldum rétt til að ljúka málinu á fundinum og í tölvupósti til framkvæmdastjóra Eflingar sé samningsvilji ítrekaður.
„Á fundinum lagði Efling fram tilboð, sem fól í sér að Eldum rétt ætti að greiða kr. 4.404.295 vegna málsins. Af þeirri fjárhæð voru 3 milljónir kr. í miskabætur. Efling tók skýrt fram að engin önnur lausn væri til að ljúka málinu,“ kemur fram í tilkynningu Eldum rétt.
Nánar má lesa um málið á vef mbl.is