Steinþór var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun og var þar spurður út í hugmyndir um samfélagsbanka og þau áhrif sem slíkur banki kynni að hafa á aðra banka: \"Ég veit ekki hvernig samkeppnisyfirvöld myndu líta á svona, Eftirlitsstofnun EFTA, hvernig hún myndi líta á svona. Ég er hræddur um að þau myndu telja þetta á kant við samkeppnislög að ríkið myndi þannig beita sér,“ sagði Steinþór og kvað þetta geta verið varhugavert í ljósi þess að bankinn sé að 98% í eigu ríkisins. Hann sagði hægt að teikna þetta þannig upp að með því að reka bankann sem samfélagsbanka kynnu þeir sem kysu að vera í viðskiptum við hann notið góðs af en óvíst væri um hag annarra. „Það má alveg teikna þetta svona upp en ég er ekkert viss um að allir bankar myndu fara þarna. Og ég er ekkert viss um að allir viðskiptavinir myndu vilja skipta við svona banka því hættan væri sú að þessi banki eða slíkir bankar myndu lenda í erfiðleikum.“
Í þættinum tók Steinþór vel í hugmyndir um að selja allt að 30% hlutafjár ríkisins í bankanum og sagði að féð yrði vel nýtt með því að borga niður skuldir ríkissjóðs með því. Hann sagði að enn hefðu engin alvöru skref verið stigin til að greiða niður skuldir ríkissjóðs.