\"Að mati Reykjavíkurborgar verður að draga í efa stjórnsýslulegt hæfi forsætisráðherra til þess að taka afstöðu til erindis Minjastofnunar Íslands um tillögu að friðlýsingu hafnargarðsins,“ segir borgarlögmaður vegna friðlýsingar á hafnargarðinum sem nýlega fannst við Reykjavíkurhöfn.
Með þessum orðum vísar borgarlögmaður í grein á heimasíðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um þá \"uggvænlega þróun“ sem sjái stað í skipulagsmálum borgarinnar, en þar tjáir hann sig meðal annars um fornleifar sem nýlega fundust á gömlu Iðnbaðarbankalóðinni og við gömlu höfnina.
Borgarlögmaður metur það svo að þar tjái ráðherra sig um \"friðun hafnargarðsins með afgerandi hætti“ en þess utan hafi hann komið að sömu málum á fyrri stigum. Þannig hafi forstöðumaður Minjastofnunar Íslands upplýst að forsætisráðherra hefði á fundi í ráðuneytinu í sumar fengið kynningu á málinu frá stofnuninni. Um það leyti hafi afstaða Minjastofnunar breyst úr því hafnargarðinn ætti að vernda að hluta í það að ætti að vernda garðinn að fullu.
Að öllu samanlögðu metur borgarlögmaður stöðu málsins þessa: \"Að því virtu að ráðherra hefur áður tjáð skoðun sína á friðun hafnargarðsins með afgerandi hætti og átt aðkomu að málinu á fyrri stigum leiða öll rök til þess að draga megi í efa stjórnsýslulegt hæfi hans til að taka nú afstöðu til málsins með vísan til hæfisreglna stjórnsýsluréttarins,“ segir í umsögn borgarlögmanns.