Efast um Fabergé-eggjaeign Jaroslövu í Kópavogi: „Einmitt“

Einbýlishús Jaroslövu Davidsson, ekkju Geira í Goldfinger sem lést fyrir níu árum, er nú til sölu. Húsið er á Melaheiði í Kópavogi. Í frétt Mannlífs um söluna er Jaroslava kölluð: „Fabergé-drottningin“ og sagt að hún eigi langstærsta safn Fabergé-eggja á Íslandi. „Óhætt að fullyrða að safnið sé tugi milljóna virði, jafnvel meira,“ segir í fréttinni.

Ekki eru allir sannfærðir um Jaroslava eigi raunveruleg páskaegg úr smiðju Carl Fabergé fyrir rússnesku keisarahjónin. Egg sem þessi eru fræg og koma meðal annars við sögu í James Bond-myndinni Octopussy.

x1080.jpg

„Það eru 57 Fabergé-egg til í heiminum. Þar af er SAFN af þeim í einhverju beisik húsi í Kópavogi. Einmitt,“ segir Haukur Viðar Alfreðsson á Twitter. Haukur fann svo nokkur á AliExpress: „Sorry, öll. Hélt að Fabergé-egg væru eitthvað merkilegt dæmi en það er víst hægt að kaupa þau á Ali fyrir lítið.“

Almannatengillinn Óli Kr. Ármannsson birtir svo listann yfir öll eggin 57 sem eru til: „Það virðist nú vitað um flest þeirra... og Kópavogur hvergi nefndur.“

Fótboltastjarnan Garðar Gunnlaugsson segir svo: