Gunnar Bragi Sveinsson landbúnaðarráðherra segist hafa séð hluta þeirra breytinga sem atvinnumálanefnd Alþingis hyggst leggja til við búvörusamninginn. Hann segist ekki efast um að samningurinn verði samþykktur af Alþingi.
Gunnar Bragi minnir á að formaður Sjálstæðisflokksins og fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, og varaformaður Framsóknarflokksins, og þáverandi landbúnaðarráðherra og núverandi forsætisráðherra, hafi báðir skrifað undir samninginn og það segi nóg. Samningurinn verður samþykktur með breytingum sem rúmist innan ramma hans.
Gunnar Bragi efast því ekki um að samningurinn verði samþykktur. Þegar hann var spurður hvort hann hefði gert samskonar samninginn hefði á það reynt, sagði hann að hann muni greiða honum atkvæði sitt. Það segi nóg.
Viðtal við Gunnar Braga er í Þjóðbraut í kvöld og hefst klukkan 21:00.