Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir samfélagið í áfalli eftir snjóflóðin sem féllu á Flateyri og í Súgandafirði til móts við Suðureyri í gær. Ljóst sé að ef varnargarðar hefðu ekki verið til staðar hefði ástandið verið eins og eftir snjóflóðin 1995. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins.
„Ef þessi varnargarður væri ekki fyrir værum við að horfa á flóð af stærðargráðunni frá 1995 og ég held að það vilji bara enginn hugsa þá hugsun til enda.“ segir Guðmundur. „Ofanflóðarvarnir skipta þarna bara sköpum.“
Guðmundur ferðaðist með varðskipinu Þór til Flateyrar í morgun þar sem vistir og aðrar vörur voru fluttar til bæjarins auk viðbragsaðila líkt og björgunarsveita. Hann segir að nú taki við að meta tjónið.
„Einnig eru hérna um borð fólk sem er að fara yfir til að aðgæta eigur sínar, því það sem tekur við núna er að meta eignatjón. Og svo náttúrulega númer eitt, tvö og þrjú að taka utan um og hlúa að fólkinu á Flateyri, því þetta er eins og fólk getur kannski ímyndað sér, gríðarlegt áfall fyrir allt samfélagið.“