Frá árinu 2007 hafa verið gerðar 176 breytingar á skattkerfinu, að því er fram kemur í samantekt Viðskiptaráðs Íslands. Breytingarnar skiptast í 44 skattalækkanir og 132 skattahækkanir.
Það er því niðurstaða ráðsins að fyrir hverja skattalækkun hafa því skattar verið hækkaðir þrisvar sinnum.
Undanfarin tvö ár hafa stjórnvöld undið ofan af óhagfelldri þróun skattkerfisins árin á undan. Boðaðar aðgerðir um lækkun og einföldun tekjuskatta ásamt afnámi tolla á fatnað og skó eru í því samhengi fagnaðarefni. Það er von Viðskiptaráðs að stjórnvöld haldi áfram að lækka skatta á ný á komandi árum.
Helstu skattkerfisbreytingarnar frá árinu 2007 eru eftirfarandi:
- Tekjuskattur einstaklinga hefur hækkað um 34%
- Útsvar hefur hækkað um 11%
- Fjármagnstekjuskattur hefur hækkað um 100%
- Erfðafjárskattur hefur hækkað um 100%
- Áfengisgjöld hafa hækkað um 60%
- Kolefnisgjöld á bensín og díselolíu hafa hækkað um 100%
- Tryggingagjald hefur hækkað um 37%
- Útvarpsgjald hefur hækkað um 75%