„Ef hún væri í Sjálfstæðisflokknum væri allt á hliðinni“

Kristrún Frosta­dótt­ir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Reykjavík suður, ætlar ekki að ræða um hagnað sem hún hlaut af nýtingu kaupréttar sem starfsmaður Kviku banka. Fram kemur í frétt Morgunblaðsins í dag að hagnaðurinn gæti hafa numið um 100 milljónum króna. Þá er haft eftir Loga Einarssyni, formanni Samfylkingarinnar, að hún muni svara.

„Eins og margoft hef­ur komið fram þá var ég starfsmaður Kviku banka áður en ég ákvað að bjóða mig fram til Alþing­is fyr­ir Sam­fylk­ing­una. Eins og öðru starfs­fólki bauðst mér kost­ur á að fjár­festa í áskrift­ar­rétt­ind­um í bank­an­um og við hjón­in nýtt­um okk­ur sparnað sem við átt­um til þess.

Nú þegar lít­ur út fyr­ir að ég nái kjöri á Alþingi mun ég að sjálf­sögðu, eins og aðrir, fylgja öll­um regl­um varðandi hags­muna­skrán­ingu þing­manna og gefa upp viðeig­andi eign­ir. Þar er ekki miðað við að fólk opni sín per­sónu­legu fjár­mál upp á gátt mörg ár aft­ur í tím­ann eins og ég hef verið kraf­in um af sum­um fjöl­miðlum. Þar af leiðandi hyggst ég ekki tjá mig um mín per­sónu­legu fjár­mál eða viðskipti sem ég átti áður en ég hóf af­skipti af stjórn­mál­um.

Að öðru leyti vísa ég til þess sem ég hef áður sagt um málið í ít­ar­leg­um færsl­um á net­inu. Ég ætla ein­beita mér að því að ræða um mál­efn­in sem ég og við í Sam­fylk­ing­unni vilj­um berj­ast fyr­ir,“ segir í svari hennar til Morgunblaðsins

Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, segir á Twitter að frétt Morgunblaðsins hefði fengið mun meiri viðbrögð ef Kristrún væri í Sjálfstæðisflokknum en ekki Samfylkingunni. „Ef hún væri í Sjálfstæðisflokknum væri allt á hliðinni yfir því hvað hún hefði eiginlega að fela. Ég held að þessi leynd hljóti að skaða hana meira en að svara einfaldlega fyrir þetta,“ segir Andrea, færslu hennar er deilt af Ungum Sjálfstæðismönnum.

Lögmaðurinn Ingvar Birgisson, fyrrverandi formaður SUS, segir svo: „Það þurfti örlitla pressu og ljóminn hvarf á núll einni. Hún er eflaust fín og allt það en hún hefur klúðrað þessu máli PR-lega alla leið,“ segir hann og bætir við: „Við hægrimenn sýnum kaupréttarsamningum fullan skilning. Þ.v. er mín kenning að hún sé að draga lappirnar í þessu því það er erfitt að útskýra þetta fyrir kjósendum eigin flokks og þeirra sem þau keppast um atkvæði við.“