„Vildi ekki að fyrsta skiptið okkar saman væri þegar ég væri drukkin. Hann reddaði sér þá bara þegar ég var sofnuð.“
Þannig hljómar ein af um þrjú hundruð sögum af kynferðisofbeldi þar sem gerendur eru undir tuttugu og fimm ára sem Sólborg Guðbrandsdóttir afhenti Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra í morgun. Hún hafði safnað sögunum síðustu mánuði. Frásagnirnar eru flestar úr nánum samböndum. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins.
Sólborg hefur vakið athygli á alvarleika kynferðisofbeldis og barist gegn ofbeldinu með því að halda úti Instagram-síðunni Fávitar. Þá hefur hún haldið fjölda fyrirlestra í skólum landsins. Vill hún að fræðsla um kynferðisofbeldi verði aukin í skólum landsins sem og í samfélaginu öllu. Sólborg segir í samtali við Fréttablaðið:
„Það er að ótrúlega margt ungt fólk verður fyrir ofbeldi á grunn- og framhaldsskólaaldri og ótrúlega margt ungt fólk sem beitir ofbeldi, oft án þess að hreinlega gera sér grein fyrir því.“
Ein sagan sem Sólborg afhenti Áslaugu hljómar svona:
„Hann sannfærði mig líka um að ég gæti ekki hætt með sér því allar vinkonur mínar væru hrifnari af honum heldur en mér og að ég myndi enda vinalaus. Hann kallaði mig hóru, ljóta og mikið meira daglega og sagði að ég væri góðgerðarmál fyrir sér og ég væri í raun heppin. Ef ég neitaði honum barði hann mig eða hélt mér fastri á meðan hann nauðgaði mér.“
Þá segir Sólborg að Áslaug Arna hafi tekið vel í verkefnið þegar hún tók á móti sögunum. Hún hefur einnig óskað eftir fundum með fleiri ráðherrum og þingmönnum.
„Það er hægt að koma í veg fyrir ofbeldi með fræðslu. Ofbeldi er ekki eðlilegt ástand [...] Þessi börn verða fyrir ofbeldi og þau eiga betra skilið en að komið sé fram við þau eins og eintómar tölur á blaði.“
Önnur frásögn kynferðisofbeldi sem Áslaug fékk afhent hljóðar svo:
„Hann segir við mig: „Ef þú sefur ekki hjá mér þá sýni ég vinum mínum myndir/myndbönd af þér.\"“
Hér má lesa ítarlegt viðtal við Sólborgu á vef Fréttablaðsins.