Eðlilegast að þorvaldur fari í leyfi

Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, furðar sig á yfirlýsingu stjórnar AFE sem sendi í gær út tilkynningu þar sem  fullu trausti er lýst gagnvart framkvæmdastjóra félagsins.

Í yfirlýsingu AFE segir, eftir að framkvæmdastjóri félagsins, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, var fundinn sekur um aðild að broti við markaðsmisnotkun í svokölluðu Stím-máli frá þeim tíma sem Þorvaldur Lúðvík starfaði hjá Saga Bank:

Í ljósi niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur vill stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs. (AFE) koma eftirfarandi á framfæri: 

Eftir að hafa farið gaumgæfilega yfir málið og leitað sér lögfræðiráðgjafar hefur stjórn AFE komist að þeirri niðurstöðu að aðhafast ekki í máli framkvæmdastjóra félagsins fyrr en að niðurstaða Hæstaréttar Íslands liggur fyrir.

Allt frá því að framkvæmdastjórinn fékk stöðu grunaðs manns hefur stjórn félagsins borið fullt traust til hans og á því hefur ekki orðið breyting. Það er ákvörðun stjórnar að leyfa framkvæmdastjóra að njóta áfram vafans. Í ljósi þess hvernig á málum hefur verið haldið hingað til og þess að málið er enn í meðförum dóms telur stjórn eðlilegt að endanleg ákvörðun verði ekki tekin fyrr en að úrskurður Hæstaréttar liggur fyrir, enda hefur Hæstiréttur síðasta orðið um sekt manna og sakleysi að lögum.
  F. h. stjórnar Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs. Unnar Jónsson, formaður.“

Það er ekki síst sá skilningur sem birtist í tilkynningu AFE um „fullt traust“ þrátt fyrir að dómsvald hafi dæmt Þorvald Lúðvíkan sekan og í 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi sem vakið hefur spurningar bæjarbúa á Akureyri í dag. Sagt hefur verið að enn láti stjórn AFE  eins og framkvæmdastjórinn, sem verður að hafa trúnað við almenning, enda höndlar hann með opinbert fé og fær greitt úr almannasjóðum, sé saklaus.

Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi VG á Akureyri, segir aðspurð hvort formaður stjórnar AFE njóti trausts eftir þá yfirlýsingu sem hann skrifar undir og hefur sent fjölmiðlum í dag?

„Ég furða mig á þessari yfirlýsingu formanns AFE sem virðist ekki líta á héraðsdóm sem raunverulegt dómsstig,“ svarar Sóley.

Hún bætir við: „Ráðning Þorvaldar var umdeild á sínum tíma og færði þáverandi bæjarfulltrúi VG góð rök fyrir því að hún væri hvorki fagleg né siðleg. Þau rök halda ekki síður í dag og því þætti mér eðlilegt að framkvæmdastjórinn færi í leyfi á meðan beðið væri niðurstöðu Hæstaréttar.“