Eðli kvótakerfisins segir til sín

Síðustu atburðir á Akranesi þar sem HB Grandi boðar lokun á botnfiskvinnslu sinni eru til marks um eðli kvótakerfisins sem hefur leitað hagræðis allar götur frá því það var sett á fót í byrjun níunda áratugar síðustu aldar.

Þetta er mat þeirra Bjarna Ólafssonar, ritstjóra Viðskiptablaðsins og Karls Garðarssonar, fyrrverandi fréttastjóra Stöðvar 2 og alþingismanns, en þeir leiða saman hesta sína í þróttmiklum og áheyrilegum Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem skjálftinn á Skaganum verður til tals, ásamt umfjöllun um grátkór útgerðarmanna vegna styrkingu krónunnar, uppnámið á kjaramarkaði á næstu mánuðum þegar 120 kjarasamningar renna út, en einnig verður rætt um bankasöluna þar sem Bjarni segir nýja kaupendur vera komna til að vera - og ríkisfjármálaáætlun næstu áranna ber einnig á góma, en hún virðist ekki ætla að innifela neinar kerfisbreytingar sem þó voru boðaðar af tveimur af þremur ríkisstjórnarflokkum fyrir kosningar.

Pólitísk líðan stjórnarsamstarfsins verður líka rædd, en Karl Garðarsson metur það svo að staða Sjálfstæðisflokksins og formannsins Bjarna Benediktssonar sé alltof sterk fyrir minni flokkana í stjórn; sá stóri í samstarfinu nái einfaldlega öllu sínu fram - og ekki séu heldur innanflokksátökin að þvælast fyrir þeim hægrimönnum, en Bjarni hafi sterka liðsheild að baki sér í rútineruðum flokki sem nýir flokkar hafi ekki roð við.

Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00 í kvöld.