Eddan: hrútar komu, sáu og sigruðu

Kvikmyndin Hrútar var sigurvegari Edduverðlaunanna í gærkvöld, en þau voru afhent í 17. sinn við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica að viðstöddu fjölmennu. Hrútar fékk alls 11 verðlaun, en var tilnefnd til 13.

Aðalleikendur myndarinnar, þeir Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson fengu hvor sín verðlaunin fyrir bestan aðalleik og bestan aukaleik - og þá fékk Grímur Hákonarson Edduna fyrir leikstjórn myndarinnar sem rakaði til sín flestum tækniverðlaunum auk þess sem hún var valin besta myndin.

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir var valin besta leikkonan fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsseríunni Rétti.

Kastljós var valinn besti frétta- og viðtalsþátturinn og einn liðsmanna þess, Helgi Seljan var valinn sjónvarpsmaður ársins. Þá var Ófærð valinn besti sjónvarpsþáttur ársins. 

Kvikmyndirnar Fúsi, í leikstjórn Dags Kára, og Þrestir, eftir Rúnar Rúnarsson, voru tilnefndar til tólf og tíu verðlauna en fóru án verðlauna af hátíðinni.

Lista yfir verðlaunahafa kvöldsins má sjá hér fyrir neðan:

Hljóð ársins – Huldar Freyr Arnarson og Björn Viktorss (Hrútar)
Leikari í aðalhlutverki – Sigurður Sigurjónsson (Hrútar)
Leikari í aukahlutverki – Theódór Júlíusson (Hrútar)
Handrit ársins – (Hrútar)
Leikstjórn ársins – Grímur Hákonarson (Hrútar)
Gervi ársins – Kristín Júlía Kristjánsdóttir (Hrútar) 
Leikmynd ársins – Bjarni Massi Sigurbjörnsson (Hrútar)
Búningar ársins – Margrét Einarsdóttir og Ólöf Benediktsdóttir (Hrútar)
Kvikmyndataka ársins – Sturla Brandth Grovlen (Hrútar)
Klipping ársins – Kristján Loðmfjörð (Hrútar)
Kvikmynd ársins - Hrútar
Leikkona í aukahlutverki – Birna Rún Eiríksdóttir (Réttur)
Leikkona í aðalhluverki – Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir (Réttur)
Leikið sjónvarpsefni ársins – Ófærð 
Brellur ársins – Sigurjón F. Garðarsson, Daði Einarsson og RVX (Ófærð)
Tónlist ársins – Jóhann Jóhannson, Hildur Guðnadóttir og Rutger Hoedemækers (Ófærð)
Heimildarmynd ársins – Hvað er svona merkilegt við það (RÚV)
Skemmtiþáttur ársins – Árið er (RÚV)
Menningarþáttur ársins – Öldin okkar (RÚV)
Frétta- eða viðtalsþáttur ársins – Kastljós (RÚV)
Sjónvarsmaður ársins – Helgi Seljan (RÚV)
Barna- og unglinga efni – Ævar vísindamaður
Lífstílsþáttur ársins – Ævar vísindamaður
Stuttmynd ársins – Regnbogapartý