Nýr sprenghlægilegur þáttur af Lóa og lífið verður sýndur á Hringbraut í kvöld, en þættirnir eru laufléttir viðtalsþættir þar sem fjallað er um vináttu og náin tengsl af öllu tagi.
Að þessu sinni fær Lóa til sín leikara-mæðginin Eddu Björgvins og Björgvin Franz en þau hafa verið dugleg að vinna saman í rúmlega 30 ár. Um þessar mundir hafa þau verið að gera allt vitlaust í Austurbæ við sýningar á „Eddunni” en hún hefur fengið lof gagnrýnenda. Þau segja Lóu frá samstarfi sínu og deila með áhorfendum frábærum sögum um hvernig samstarf þeirra hófst.
Má þar nefna þegar Björgvin Franz rifjar upp þegar hann fékk áhuga á The Rocky Horror Picture Show og klæddist hvítum sokkabuxum og korsiletti af ömmu sinni og labbaði um í karakter, meðal annars náði hann að trufla fund hjá föður sínum, Gísla Rúnari sem sat þar þungt hugsi með fjárfestum á viðkvæmu augnabliki samningaviðræðna.
Alls ekki missa af þættinum Lóa og lífið á Hringbraut þar sem Edda og Björgvin fara á kostum, en þátturinn byrjar klukkan 20:00 í kvöld og er endursýndur strax klukkan 22:00.