Edda heiðrún hreppti heiðursgrímuna

Leikkonan ástæla, Edda Heiðrún Backman hlaut heiðursverðlaun Grímunnar 2015. Hún á að baki glæstan leikferil allt frá því hún lauk leiklistarnámi fyrir rífum 30 árum, en litlu síðar sló hún í gegn í Litlu hryllingsbúðinni.
 

Arnmunstur Errnst Backam, sonur Eddu las þakkarræðu hennar og kvað hana hafa verið stressaða áður en hún kom fram á sviði í þúsundasta skipti. „Maður verður að hafa frelsi til að vera maður sjálfur,\" sagði Edda Heiðrún og kvaðst um stund hafa efast um heilbrigði dómnefndarinnar þar sem hún hefði ekki leikið í tólf ár. Hún rifjaði upp að hafa stofnað blómabúð 2007 sem hefði rúllað 2009. Hún lagði áherslu á að styðja við bakið á íslenskum leikskáldum. Einnig lagði hún áherslu á rannsóknir á taugakerfinu, sem ættu að vera eitt af hlutverkum Sameinuðu þjóðanna. Þá þakkaði hún 26 þúsund manns sem hefðu undirritað skjal þessa efnis sem sent var framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.

Verðlaunahafar á Grímuhátíðinni 2015

  • Sýning ársins - Dúkkuheimili
  • Leikrit ársins – Konan við 1000°
  • Leikstjóri ársins – Harpa Arnardóttir fyrir Dúkkuheimili
  • Leikari ársins í aðalhlutverki – Þór Tulinius fyrir Endatafl
  • Leikkona ársins í aðalhlutverki – Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Dúkkuheimili
  • Leikari ársins í aukahlutverki – Ólafur Egill Egilsson fyrir Sjálfstætt fólk
  • Leikkona ársins í aukahlutverki – Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Billy Elliott
  • Dansari ársins – Þyrí Huld Árnadóttir fyrir Sin
  • Tónlist ársins – Ben Frost fyrir Black Marrow
  • Barnasýning ársins – Lífið stórskemmtilegt drullumall
  • Leikmynd ársins – Ilmur Stefánsdóttir fyrir Dúkkuheimili
  • Búningar ársins – Filippía I. Elísdóttir fyrir Dúkkuheimili
  • Lýsing ársins - Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir Dúkkuheimili
  • Hljóðmynd ársins – Eggert Pálsson og Kristján Einarsson fyrir Ofsa
  • Söngvari ársins – Kristinn Sigmundsson fyrir Don Carlo
  • Danshöfundur ársins – Damiel Jalet fyrir Les Médusées
  • Sproti ársins – Tíu fingur fyrir Lífið stórskemmtilegt drullumall
  • Útvarpsverk ársins – Blinda konan og þjónninn eftir Sigurð Pálsson
  • Heiðursverðlaun Grímunnar – Edda Heiðrún Backman