Edda Falak deildi á Twitter fyrr í dag skjáskot af skilaboðum sem hún fékk á Instagram, þau sýna óviðeigandi skilaboð sem maður hefur sent henni.
Edda segir á Twitter þræðinum að maðurinn sé dómari og bendir á að ekki sé skrýtið að mál séu felld niður þegar dómararnir hegða sér svona.
Dómarinn sendir henni skilaboð eins og „Þessar myndir af þér fella niður heilu hjarðirnar af heilbrigðum karlmönnum" og „Ef þig vantar cool bíl til að láta mynda þig í eða bara fá lánaðan smá þá á ég einn góðan."
Edda deilir öðru skjáskoti í þræðinum þar sem hún segir hæstaréttarlögmann hafa sent skilaboð eins og „Treystu mér – því eldri sem eiginmaðurinn þinn er eldri en þú – þeim mun ólíklegra er að hann yngi upp.“
Edda segir allt rotið í dómskerfinu.
Þráðinn má sjá hér að neðan:
Ég: "afhverju var þetta mál fellt niður? hver var dómarinn í þessu máli?"
— Edda Falak (@eddafalak) April 27, 2022
Dómarinn in my dms: pic.twitter.com/F0zobHOlxP
Svipað óþægilegt og þessi hæstaréttalögmaður. Þetta er mest allt rotið þarna… pic.twitter.com/8x5NZTbaRq
— Edda Falak (@eddafalak) April 27, 2022