Edda fær ógeðfelldar hótanir: „Þarf ég að fá neyðarhnapp?“

Áhrifavaldurinn og aktísvistinn Edda Falak opnaði sig um ógeðfelldar hótanir sem hún hefur fengið vegna starfs síns. Hún upplifir óöryggi vegna umrædda hótana. Frá þessu greindi hún í viðtali við Morgunútvarpið.

Þar var hún spurð hvaða áhrif ofbeldis- og líflátshótanir hafi á sig. „Ég reyni nú að lifa ekki í ótta. En maður hefur alveg séð að fólk fer hamförum á netinu, eins og í hryðjuverkum. Fólk segir hvað það ætlar að gera, og svo gerist það. Við höfum alveg séð þetta eins og í Noregi.“ sagði Edda.

Því segist hún finna fyrir óöryggi, til dæmis þegar sendibílar keyri fram hjá henni. Og þá segist hún velta því fyrir sér hvort hún þurfi hreinlega að fá neyðarhnapp.

„Auðvitað kemur þetta upp í hausinn á mér. Það er verið að auglýsa eftir mönnum til að halda mér því einhver ætlar að nauðga mér. Þá hugsa ég alveg þegar sendibíll keyrir fram hjá mér: Þarf ég að fá neyðarhnapp?“