Leikkonan Edda Björgvinsdóttir minnist föður síns sem er fallinn frá eftir stutt veikindi með fallegum orðum á Facebook-síðu sinni.
„Gleðigjafinn Björgvin Magnússon lifði í 98 ár, hvorki meira né minna og var fullur af lífsgleði fram á síðasta dag. Pabbi var einstakur maður í alla staði og hafði djúpstæð áhrif á óendanlega stóran hóp fólks, sem minnist hans nú með ást og endalausu þakklæti.
Kennarinn, skólastjórinn, leiðbeinandinn, skátinn og líknarinn snerti hjörtu og breytti lífum svo margra,“ segir Edda meðal annars í færslunni.
Edda segir föður sinn hafa verið örlátan með eindæmum á kærlega og umhyggju hvar sem hann kom. Þá hafi allir sem kynntust honum elskað hann skilyrðislaust og dáð hann.
„Pabbi var mín helsta fyrirmynd í einu og öllu og ég get ekki fullþakkað að hafa fengið að alast upp hjá þessu dýrmæta eintaki af manni,“ segir Edda jafnframt.