Edda björgvins í mannamáli

Ein allra dáðasta og vinsælasta leikkona þjóðarinnar, Edda Björgvinsdóttir sest gegnt Sigmundi Erni í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld og fer yfir viðburðaríkt lífshlaup sitt.

Edda er það einbirni á Íslandi sem eignast hefur hvað flesta bræður! Hún ólst upp á Jaðri, skammt utan borgarlandsins, þar sem faðir hennar og móðir stjórnuðu því sem þá var kallað heimili fyrir vandræðadrengi. Eddu fannst sem þeir væru allir bræður sínir, en þarna innan um voru þjóðkunnir menn á borð við Sævar Ciecelski og Lalli Johns \"sem voru nú bara ósköp venjulegir strákar\" eins og Edda lýsir í þættinum.

Hún var alltaf að sýna sig og leika sem barn - og því endaði hún vitaskuld námsferilinn í leiklistarskóla, þá orðin tveggja barna móðir, fráskilin - og við það að hitta kaffibrúsakarlinn Gísla Rúnar Jónsson sem var orðin þjóðkunnur leikari sem Edda féll fyrir. Hún lýsir sambandi þeirra hjóna í þaula, sem var oft og tíðum á við stórsýningu á sviði, en eftir að þau hættu saman eru þau perluvinir - og er eftirtektarvert að heyra Eddu lýsa því hvernig þau Gísli Rúnar hafa byggt upp vináttusamband sitt á síðustu árum.

Edda lýsir hlutverki gamanleikarans í viðtalinu á hispurslausan hátt, fjölmörgum hlutverkum sínum og hvernig margar þekktustu persónur hennar hafa orðið til, svo sem Bibba á Brávallagötunni, Túrilla, Stella og hinir óviðjafnanlega karakterar hennar úr Heilsubælinu í Gervahverfi, en sagan af aðdraganda þeirrar fádæma vinsælu sjónvarpsseríu er sögð á eftirminnilegan hátt í þættinum.

Viðtalsþátturinn Mannamál er frumsýndur í kvöld klukkan 20:30.