Edda Falak, áhrifavaldur og aktívisti, birti í kvöld skilaboð sem hún segist hafa fengið frá þjóðþekktum manni. Skilaboðin birti hún á Twitter-síðu sinni ásamt eftirfarandi skilaboðum:
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þekktur maður sem ég hef aldrei talað um né talað við finnur sig knúinn til þess að senda mér að hann sé sko EKKI ofbeldismaður og mun sko VONANDI ekki verða. MY DUDES, finnið ykkur sálfræðing eða hafið samband við heimilsfrið! fokking kræst.“
Sá sem sendir Eddu skilaboðin heldur því fram að hann sé ekki ofbeldismaður, og segist auk þess vonast að hann verði það aldrei.
Þá birti Edda fleira úr samskiptum þeirra, þar sem hann býðst til þess að tala við hana í síma. Edda svaraði því með því að segja einfaldlega: „Ertu eitthvað ruglaður?“
“það þarf að refsa KONUM, en endilega bjallaðu” ertu eitthvað RUGLAÐUR pic.twitter.com/fW9gJU85Zq
— Edda Falak (@eddafalak) February 10, 2022