Glæsilegir heimildarþættir prýða fyrstu páskadagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar og ber þar einna hæst náttúrulífsmyndir og sönglist á heimsmælikvarða. Fyrst er til að taka heimildarmynd um Kristin Sigmundsson óperusöngvara sem verður á dagskrá Hringbrautar klukkan 21.00 í kvöld en þar er listamanninum fylgt eftir í lífi hans og list. Myndin er unnin af meistaranum síunga, Páli Steingrímsssyni sem einnig gerði heimildarmyndina um Lífríki Seltjarnarness sem sýnd verður á Hringbraut klukkan 21.00 á páskadagskvöld.
Forrráðamenn Hringbrautar hafa nýverið gert samning við Pál um sýningar á nær öllum hans heimildarmyndum en þar spanna nánast allt litróf íslenskrar náttúru, auk mannlífs og lista. Verða þær sýndar á mánudagskvöldum eftir páska þegar dagskrárliðum Hringbrautar á hveerju kvöldi verður fjölgað um helming frá því sem nú er.
Sérstakur söngþáttur með mörgum helstu söngvurum landsins og kórum, Eðaltónar verður svo og á dagskrá klukkan 21.00 á föstudaginn langa og þá er einnig upplagt að setja sig í stellingar framan við skjáinn á laugardagskvöld klukkan 21.00 þegar hin frábæra heimildarmyndeftir eftir Pétur Steingrímsson, Hvannadalshnúkur verður á dagskrá Hringbrautar en þar geta áhorfendur slegist í för með leiðangri upp á hæsta tind Íslands. Sýning myndarinnar er í samvinnu við Ferðafélag Íslands.