Íslenskur þyrluflugmaður hefur verið ákærður fyrir að lenda þrisvar með farþega og hleypa þeim út á bannsvæði meðan á eldgosinu í Holuhrauni stóð.
Frá þessu greinir Ríkisútvarpið.
Brotin uppgötvuðust þegar auðkýfingur birti mynd af sér og félögum sínum nærri eldstöðinni. Var talað um \"montmyndbirtingu\" á samfélagsmiðlum en líflegar umræður urðu á meðan á gosinu stóð um takmörkun almennings að gosstöðvunum.
Eftir því sem fram kemur hjá Rúv er það lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra sem hefur ákært þyrluflugmanninn og gæti sekt hans numið allt að hálfri milljón króna.