Dýrastofnar heimshafanna hafa minnkað um helming frá árinu 1970 og þeir stofnar sem mikilvægastir eru mönnum um allt að þremur fjórðu. Þetta eru niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á vegum Alþjóða náttúruverndarsjóðsins, World Wildlife Fund.
Greint er frá niðurstöðunni á fréttavef RÚV í morgun þar sem fram kemur að rannsóknin hafu verið unnin í samstarfi við Dýrafræðifélag Lundúna og taki til 1.234 tegunda sjávarspendýra, sjávarfugla, sjávarskriðdýra, fiska, lindýra og kóralla, sem aftur skiptist í 5.829 stofna. Fram komi þar að ofveiði, mengun og áhrif loftslagsbreytinga hafi höggvið stór skörð í stofna helstu fisktegunda sem nýttar séu til manneldis. Sú ætt fiska sem túnfiskur og makríll tilheyri hafi til að mynda minnkað um 74% milli áranna 1970 og 2010.
Marco Lambertini, framkvæmdastjóri Alþjóða náttúruverndarsjóðsins, segir mannkynið hafa gengið afar nærri lífríki hafsins undanfarna áratugi, stundað ósjálfbærar fiskveiðar og eyðilagt hrygningar- og uppeldisstöðvar fjölmargra fiskistofna. Þetta hafi alvarlegar afleiðingar fyrir mannkynið allt, en bitni þó fyrst og mest á fátækustu þjóðum heims.
Góðu fréttirnar séu þó þær að þessari þróun megi enn snúa við með ábyrgari umgengni við þessa mikilvægu auðlind allra Jarðarbúa en tíðkast hefur undanfarna áratugi. Sjálfbærar veiðar og verndun hafsins fyrir hvers kyns mengun yrðu að vera ofarlega á forgangslistanum þegar Sameinuðu þjóðirnar setja sér sjálfbærnimarkmið fyrir næstu fimmtán árin síðar í þessum mánuði, að því er fram kemur í frétt RÚV um málið í dag.