Í fjárlagafrumvarpinu 2016 kemur fram að Embætti forseta Íslands fær 259,7 m.kr. fjárveitingu til embættisins á næsta ári.
Það jafngildir 13,5 m.kr. hækkun að raungildi frá fjárlögum yfirstandandi árs en að meðtöldum launa- og verðlagsbreytingum nemur hækkunin 26,3 m.kr.
Breytingar eru af tvennum toga, segir í fjárlagafrumvarpinu. Annars vegar er 15,2 m.kr. hækkun vegna hlutdeildar í útgjaldasvigrúmi æðstu stjórnar ríkisins. Þar af eru 10,2 m.kr. til styrkingar á almennum rekstri embættisins en 5 m.kr. til drenlagnar við grunn gestahúss embættisins við Laufásveg. „Hins vegar er 1,7 m.kr. lækkun á almennu rekstrarframlagi í samræmi við markmið um aðhald í útgjaldaramma,“ segir í fjárlagafrumvarpinu.