Dýralæknar telja ekki aukna áhættu af fersku kjöti

Alls bárust sjötíu umsagnir um frumvarp sem heimilar innflutning á fersku, ófrystu kjöti, ferskum eggjum og ógerilsneyddum mjólkurvörum. Umsagnirnar eru flestar neikvæðar og lýsa meðal annars áhyggjum af sjúkdómahættu, sýklalyfjaónæmum bakteríum, afkomu bænda og samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar. Dýralæknafélag Íslands er einn þeirra aðila sem sendi inn umsögn og telur enga aukna áhættu stafa af fersku kjöti. RÚV.is greinir frá.

Dýralæknafélagið telur hverfandi ef nokkra aukna áhættu af fersku kjöti á móti frosnu kjöti, sem þegar er flutt inn til landsins. Félagið bendir hins vegar á aukna áhættu fyrir neytendur ef ógerilsneydd egg verða flutt inn, vegna hættu á salmonellusmiti úr eggjum í löndunum í kringum okkur.

Þá er einnig bent á þann þátt er lýtur að dýravelferð, þar sem hætt sé við því að mjög ódýrt kjöt hafi ekki verið framleitt við besta mögulega aðbúnað dýranna. Tryggja þurfi að allar búfjárafurðir sem fluttar eru inn séu ekki framleiddar við lakari dýravelferð en farið er fram á við íslenska frumframleiðendur.

Félagið segir mikilvægt að íslensk stjórnvöld geri sér grein fyrir því að með fleiri ferðamönnum aukist hættan á því að smitsjúkdómar berist til landsins. Til dæmis megi nefna að ferðamenn frá öllum heimshornum hægi sér úti í náttúrunni vegna skorts á salernisaðstöðu, þar sem búfé og villt dýr hafast við, og að þetta auki líkurnar á smithættu umtalsvert.

Einnig séu dæmi um að ferðamenn fóðri dýr með matvælum sem ekki eru ætluð dýrum. Miðað við núverandi ástand sé því smitvörnum verulega ábótavant.