Dýralæknar skulu tala íslensku

Umboðsmaður Alþing­is tel­ur að það sé ekki í sam­ræmi við lög að Mat­væla­stofn­un ráði til starfa dýra­lækna sem ekki hafa vald á ís­lenskri tungu. Þetta kem­ur fram í niður­stöðu hans sem mbl.is segir frá í dag, en Dýra­lækna­fé­lag Íslands kvartaði yfir því að und­an­far­in ár hefði Mat­væla­stofn­un ráðið er­lenda dýra­lækna í eft­ir­lits­störf án þess að þeir hefðu vald á ís­lenskri tungu.

Skýrsl­ur og at­huga­semd­ir þeirra til eft­ir­lits­skyldra aðila og annarra dýra­lækna hefðu því verið á ensku. Fé­lagið taldi að slíkt væri ekki í sam­ræmi við þá kröfu í lög­um að dýra­lækn­ar sem störfuðu hér á landi í op­in­berri þjón­ustu skyldu hafa vald á ís­lenskri tungu. Af þess­um sök­um hafði fé­lagið beint er­ind­um til at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­is­ins og skorað á það að bregðast við. 

Umboðsmaður taldi að það væri ekki í sam­ræmi við lög um dýra­lækna og heil­brigðisþjón­ustu við dýr að Mat­væla­stofn­un réði til eft­ir­lits­starfa dýra­lækna sem hefðu ekki vald á ís­lenskri tungu þar sem í lög­un­um kæmi sér­stak­lega fram að dýra­lækn­ar í op­in­berri þjón­ustu skyldu hafa vald á ís­lenskri tungu. Þá taldi hann það ekki í sam­ræmi við lög að sam­skipti þeirra á veg­um stofn­un­ar­inn­ar við eft­ir­lits­skylda aðila og eft­ir at­vik­um aðra væru að hluta til á ensku, í þeim til­vik­um sem það væri ekki í þágu þeirra sem eft­ir­lit eða önn­ur starf­semi stofn­un­ar­inn­ar lyti að. Umboðsmaður vakti at­hygli á að at­hug­un hans hefði ekki tekið til þess hvort og þá hvaða þýðingu lög um frjáls­an at­vinnu- og bú­setu­rétt launa­fólks inn­an Evr­ópska efna­hags­svæðis­ins kynnu að hafa, enda hefðu stjórn­völd ekki byggt á því að til­tek­in ákvæði ættu við um þau eft­ir­lits­störf dýra­lækna sem at­hug­un­in hefði beinst að, segir í fréttinni á mbl.is.