Dýrahald í íbúðum félagsbústaða loksins leyft – kolbrún: „ég er mjög ánægð“

„Ég er mjög ánægð, var að fá þær fréttir að tillaga Flokks fólksins um dýrahald í íbúðum Félagsbústaða var samþykkt. Flokkur fólksins lagði fram tillögu í borgarráði þann 16. september 2018 um að hunda- og kattahald í félagslegum leiguíbúðum yrði leyft,“ skrifar Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, á Facebook-síðu sína í dag.

Þar segir hún að tillögunni hafi verið vísað til stjórnar Félagsbústaða, sem tók hana fyrir og óskaði eftir að málið yrði skoðað frekar áður en afstaða yrði tekin. „Á samráðsfundi fulltrúa Félagsbústaða og Velferðarsviðs var tillagan til umfjöllunar og var það samdóma álit fundarmanna að ekki væri rétt að standa gegn hunda- og kattahaldi.“

Um samþykktina á tillögu Flokks fólksins segir ennfremur: „Óskað var álits og umsagnar stjórnar samtaka leigjenda á tillögunni. Stjórnin tók málið upp á félagsfundi og þar kom fram að eðlilegt þykir að fylgt sé ákvæðum laga um fjöleignarhús um m.a. að afla þurfi samþykkis annarra íbúa. Þá þykir eðlilegt að útiloka tilteknar tegundir stórra hunda.“

Þar segir einnig að á fundi stjórnar félagsbústaða 2. maí síðastliðinn hafi málið verið á dagskrá að nýju og að samþykkt hafi verið að leyfa hunda- og kattahald samkvæmt almennum reglum og samþykktum íbúa.

„Samþykktin mun kynnt íbúum í fjölbýlishúsum Félagsbústaða og henni framfylgt í samræmi við lög um fjöleignar hús og samþykktir Reykjavíkurborgar um katta- og hundahald,“ segir að lokum um samþykktina.