Dyngjufjallaleið loks opnuð

Vegur númer F910, Dyngjufjallaleið milli Nýjadals og Öskju, var fyrst opnaður þetta sumarið síðastliðinn föstudag. Landverðir segja ástandið algjörlega einstætt. Mikill snjór sé enn í Öskju, en af og til hafi snjóað þar í allt sumar.

Stefanía Vignisdóttir hefur sinnt landvörslu í Öskju í sjö sumur. Hún man ekki annað eins kuldasumar og í ár: \"Það hafa verið sáralitlar leysingar, í raun ekkert sumar. Samt var veðrið mun skárra í ágúst en júlí, það snjóaði allnokkra daga í júlí,“ segir Stefanía.

Þrátt fyrir að vegfarendur að sunnan hafi ekki komist Dyngjufjallaleið fyrr en síðastliðinn föstudag, segir Stefanía að þó nokkur umferð fólks hafi verið á svæðið í sumar. Má þar einkum þakka áhuga fólks á hinu nýja Holuhrauni sem liggur ekki mjög fjarri Drekagili. Hún nefnir að sérstaklega hafi margir vísindamenn og myndatökumenn komið að Holuhrauni síðustu vikur.

Skálinn í Drekagili verður mannaður landvörðum út september.