Dýn­an var að drep­a Vil­mund: „Ég var far­inn að ótt­ast um líf mitt“

„Fyrir svona fjórum árum síðan var ég farinn að óttast um líf mitt, í hrein­skilni sagt og ég var búinn að vera spá í því áður hvort ein­hver mygla væri að hrjá mig en ég var búinn að vera mjög slæmur í ein­hver ár,“ segir Vil­mundur Sigurðs­son, raf­einda­virkja­meistari, um veikindi sem hann upp­lifði vegna myglu í rúm­dýnu.

Vil­mundur sagði í við­tali á Frétta­vaktinni að eftir á­takan­­leg veikindi sem hann lýsir sem þre­­földum eftir­­­köstum CO­VID hafi hann komist að þeirri niður­­­stöðu að efnin í rúm­­dýnunni hans væru skað­­leg.

„Ég var farinn að missa hárið og með miklar bólgur í líkamanum, lið­verki og vefjagigtar­verki með miklum nætur­svita og nef­stíflum,“ segir Vil­mundur.

Með því að skipta út kodda og svamp­dýnu og fá náttúru­legri efni í staðinn varð heilsa Vil­mundar miklu betri, út­skýrir hann.

„Ég notaði bara úti­lokunar­að­ferðir eins og ég sem raf­einda­virkja­meistari er mjög vanur að gera það til að finna bilanir, segir Vil­mundur.“

Vilmundur ræddi við Sigmund Erni á Fréttavaktinni.
Mynd/Hringbraut

Sam­eigin­leg ein­kenni

Hann er þó ekki einn um slíka reynslu. Um níu þúsund manns eru komnir í Face­book-hóp á Ís­landi sem ber heitið Er rúmið mitt að drepa mig!!

Í Face­book-hópnum á fólk það sam­eigin­legt að svitna ó­eðli­lega mikið í svefni, mjög margir eru með nef­stíflur og kæfis­vefn, haus­verkir og að vakna jafn þreytt og þegar það fór að sofa, ofur­þreyta og svona kulnunar­ein­kenni- og sam­merkt með mörgum þarna eru bólgur í líkamanum.

Hvort vísinda­legar rann­sóknir séu til sem styðji mál þessa fólks, um að svefn­vörunum sé um að kenna krank­leikana, segir Vil­mundur að lítið sé til af því. Eftir 70 ár af notkun svamps­efna virðist ekki hafa verið gerðar neinar al­vöru vísinda­legar eða opin­berar rann­sóknir. Hins vegar hafi banda­rískir há­skólar gert rann­sóknir sem gefi vís­bendingar um að í dýnum fyrir finnist skað­leg eftir, bætir Vil­mundur við og Land­læknir segi að ekki sé neitt hægt að gera þar sem rann­sóknir eru ekki fyrir hendi.

Við­talið má sjá hér í heild sinni að neðan.