Dv tapaði 124 milljónum 2014

DV ehf., útgáfufélag DV og dv.is tapaði 124 milljónum króna á árinu 2014, að því er fram kemur í nýbirtum ársreikningi þess. Skuldir félagsins jukust um rúmlega 90 milljónir króna á árinu og stóðu í 207 milljónum króna í lok þess.

Í ársreikningnum kemur jafnframt fram að hreint rekstrartap æutgáfufélagsins,að  teknu tilliti til afskrifta, var rúmlega 119 milljónir króna, en við þetta er því að bæta að skuldir Pressunnar ehf., sem á 70 prósent hlut í DV, jukust úr tæpum 69 milljónum króna í 271,7 milljónir króna á árinu 2014, eins og Kjarninn sagði frá fyrir helgi.

Félagið, sem er að stærstum hluta í eigu Björns Inga Hrafnssonar og Arnars Ægissonar, eignaðist ráðandi hlut í DV seint á umræddu ári eftir talsverð átök um eignarhald á útgáfufélaginu, en margir fyrrverandi starfsmenn DV stofnuðu síðar vefmiðilinn Stundina sem jafnframt gefur út blað á mánaðarfresti.