Morgunblaðið, ásamt Páli Winkel gagnrýndi DV fyrr í mánuðinum fyrir umfjöllun um Gunnar Rúnar Sigurþórsson. Gunnar Rúnar afplánar nú á Vernd fyrir hrottalegt morð. Í umfjöllun Morgunblaðsins var DV gagnrýnt og sagði að blaðamaðurinn Ágúst Borgþór Sverrisson hefði ekki fengið leyfi til að ræða við fangann frá fangelsismálastofnun. Setið hefði verið fyrir Gunnari Rúnari og heimilisfang hans birt. Í viðtalinu sagði Páll Winkel að hann hefði ekki gefið blaðamönnum leyfi til „slíkt umsáturs“ líkt og það er orðað í Morgunblaðinu.
DV hefur svarað umfjöllun Morgunblaðsins fullum hálsi. Í Sandkorni í helgarblaði DV segir:
„Fréttaflutningur DV af afdrifum refsifangans Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, sem banaði Hannesi Þór Helgasyni árið 2010, sætti harðri gagnrýni í vikunni sem leið. Morgunblaðið gagnrýndi sérstaklega að blaðamaður hefði ekki aflað leyfis fangelsismálastjóra fyrir umsátri.
Ekki tók fangelsismálastjóri þó fram hvort slíkra leyfa bæri almennt að afla eða hvort um eiginlegt umsátur væri að ræða.
Blaðamaður beið eftir Gunnari fyrir utan Vernd. Samskipti þeirra voru knöpp og kurteis. Lög um fullnustu refsinga segja að leyfi þurfi að afla fyrir fjölmiðlaviðtali við fanga. Þetta kemur fram í grein sem fjallar um aðgang fanga að fjölmiðlum. Ekki um aðgang fjölmiðla að fanga.
Ekki var um fjölmiðlaviðtal að frumkvæði Gunnars að ræða. Þarna var blaðamaður að ná í staðfestingu á að Gunnar væri þar og gefa honum færi á að koma athugasemd á framfæri. Ekki umsátur í leyfisleysi.“