Dularfullt loðdýr læddist inn í myndband Friðjóns

Kosningamyndbönd Friðjóns Friðjónssonar almannatengils hafa vakið töluverða athygli og undrun. Friðjón tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem hófst í dag. Freistar hann þess að verða sér úti um þingsæti.

Margir frambjóðendur hafa verið að birta myndbönd af sér að segja frá sínum stefnumálum á samfélagsmiðlum. Í myndbandi Friðjóns virðist sem furðulegt loðdýr hafi laumað sér inn í bakgrunninn, að minnsta kosti virðist Friðjón ekki verða þess var.

Horfa þarf á myndbandið til enda til að skilja hvað þetta er.

Hefur þetta vakið eftirtekt netverja.

Þar á meðal einn sem óttast að hægrimenn séu mögulega með húmor.