Hringbraut hefur sent Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, þingmanni VG, formlega fyrirspurn þar sem hún er beðin um að nafngreina þingmanninn sem hún sagði í pontu á Alþingi í gærkvöld að væri flissandi og undir áhrifum þótt ekki hafi hún nefnt hann með nafni.
Hringbraut sagði fyrst fréttina eins og lesa má um hér.
A.m.k. einn þingmaður, Jón Gunnarsson, hefur sagt að þingmenn viti ekki um hvern Lilja Rafney sé að tala.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir gerði athugasemd við að fundarstjóri, Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, skyldi láta sér duga að segja: „Ha?“ Eftir að Lilja Rafney varpaði sprengjunni.
Hringbraut hefur rætt við þingmenn sem segja að þessu máli sé hvergi nærri lokið. Svona ávirðing varpi rýrð og vantrausti á þingið sem ekki hafi mátt við því ofan á annað.