Dugar ástarkveðjan íslandi áfram?

Björgvin Páll Gíslason, aðalmarkamaður karlaliðsins í handbolta, segist hafa verið svekktur út í sjálfan sig að loknum tapleiknum gegn Hvít-Rússum. Hafi það tekið hann nokkra stund að jafna sig. Eftir að dóttir hans hafi sent honum sms þar sem sagði einfaldlega: „Ég elska þig“ hafi hugurinn komist aftur á réttan stað.

Stórleikir geta staðið og fallið með markvörslu. Verður spennandi að sjá hvort ástarkveðja dóttur markvarðarins muni eiga þátt í að koma Íslandi áfram í keppninni.

Björgvin Páll ræðir sms-ið og eigið hugarástand að loknum tapleiknum í fyrradag í viðtali sem Ríkisútvarpið átti við markvörðinn geðþekka og hæfileikaríka, einn af strákunum okkar. Þar spáir hann því að leikurinn í kvöld gegn Króötum muni snúast upp í „alvöru slagsmál og læti“.

Ögurstund er framundan í síðasta leik undanriðla. Um hreinan úrslitaleik er að ræða fyrir Ísland að sögn fyrirliða íslenska karlaliðsins, Guðjóns. Ef strákarnir okkar tapa gætum þeir þurft að pakka saman og snúa heim. Með því yrði sæti á næstu ólympíuleikum fjarlægur draumur.

Stórleikurinn hefst klukan 20 í kvöld og veit Hringbraut dæmi þess að félagastarfi á Íslandi hafi verið frestað eða því hnikað til. Reikna má með að þjóðin sitji límd framan við sjónvarpið, enda allt undir.