Atvinnuveganefnd Alþingis hefur undanfarna daga dvalið í Björgvin í Noregi þar sem hún kynnir sér fiskeldi Norðmanna. Tilgangurinn er að kynna sér sjónarmið sérfræðinga þar í landi sem hafa lengri reynslu en Íslendingar af því að starfrækja fiskeldi.
Þingmenn nefndarinnar hafa verið duglegir að tjá sig um ferðina og birta myndir úr henni. Á þeim má sjá að forsvarsmenn fiskeldisfyrirtækja hér á landi eru með í för. Þannig má sjá á myndum, sem Sjálfstæðismaðurinn Ásmundur Friðriksson birtir á Facebook, að þeir Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax, og Guðmundur Gíslason, framkvæmdastjóri Fiskeldis Austfjarða, voru með í för.
Nanar a
https://www.frettabladid.is/frettir/atvinnuveganefnd-og-fiskeldisforkolfar-i-bjoergvin