Dróni breytti flugleið icelandair-vélar

Flugmenn Icelandair-vélar sem var á leið til Manchester-borgar á Englandi í morgun urðu að lenda vélinni í Liverpool vegna dróna sem sást yfir fyrrnefnda flugvellinum. Loka þurfti Manchester-velli á meðan grennslast var fyrir um ferðir drónans að sögn borgarblaðsins Manchester Evening News, en þar kemur fram að dróninn hafi ekki fundist þrátt fyrir yfirgripsmikla leit lögreglu.


Manchester-völlur var lokaður í liðlega 20 mínútur vegna þessa atviks sem er nánast einsdæmi í flugsögunni en kann að verða algengara á næstu árum enda drónar orðnir að leikföngum í höndum almennings og komast yfir hvaða varnargirðingar sem er eins og fuglinn fljúgandi. Engin lög ná sem stendur yfir ferðir dróna af þessu tagi á Englandi, hvað svo sem síðar verður.


Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair staðfestir í samtali við mbl.is að Icelandair-vélin hafi verið ein af þeim sem urðu fyrir röskunum vegna lokunar vallarins í Manchester; hún hafi lent á John Lennon-flugvellinum í Liverpool, tekið þar eldsneyti og haldið yfir til Manchester að hálfri annarri klukkustund liðinni.