Drífa snædal: „fyrir mér er spurningin fáránleg“

Drífa Snædal, forseti ASÍ, segist hafa fengið fyrirspurnir um það hvort hún styðji verkfall Eflingar í nýjum Facebook status. Hún segir spurninguna fyrir sér fáránlega, hún segist styðja skilyrðislausa grasrótar baráttu launafólks fyrir bættum kjörum.

Eins og greint hefur verið frá á vef Hringbrautar hófst verkfall rúmlega 1800 starfsmanna Eflingar hjá Reykjavíkurborg klukkan 12:30 í dag og stendur yfir til klukkan 23:59.

Miklar raskanir munu verða ýmislegri starfsemi innan Reykjavíkurborgar eins og leikskólastarfi, en yfir 1000 manns á leikskólum Reykjavíkur munu leggja niður vinnu. Þá mun sorphirða og velferðarþjónusta í Reykjavík einnig skerðast. Efling hefur boðað til fleiri verkfalla á næstu dögum.

„Ég hef fengið fyrirspurnir um hvort ég styðji verkfall Eflingar. Fyrir mér er spurningin fáránleg,“ skrifar Drífa.

„Ég styð skilyrðislaust grasrótar baráttu launafólks fyrir bættum kjörum. Það er kjarni verkalýðsbaráttu að valdið sé nálægt félagsmönnum, fólk hafi skilyrðislausan rétt til að skipuleggja sig í verkalýðsfélög og beita verkföllum í kjaradeilu. Umboð Eflingar frá félagsmönnum er sterkt.“

Hún bendir á að félagsmenn Eflingar hafi verið kjarasamningslausir í ellefu mánuði. Augljóst sé að félagar hafi sýnt mikið langlundargeð.

„Verkföll eru líka ekki bara spurning um fleiri krónur í umslagið heldur krafa um virðingu og að jafna völdin. Fólk á lægstu laununum í Reykjavík rís nú upp og krefst virðingar, að á þau sé hlustað og gengið til raunverulegra samningaviðræðna! Ábyrgðin er hjá Reykjavíkurborg!“