Drífa Snædal forseti Alþýðusambands Íslands segir valdajafnvægi á vinnumarkaði alltaf viðkvæmt. Ofbeldi geti ekki þrifist þegar ekki ríki valdajafnvægi og að einn einstaklingur hafi ekki möguleika á því að drottna yfir öðrum í krafti kyns, aldurs stöðu eða annars.
„Launafólk á allt sitt undir því að hafa vinnu og fá greitt fyrir vinnuframlag sitt. Stéttarfélög voru einmitt stofnuð til höfuðs valdi atvinnurekenda yfir launafólki og það má segja að starfsemin gangi út á það enn í dag að jafna völdin. Þau sem hafa stéttarfélag að baki sér standa ekki ein/n gegn valdinu og við getum ímyndað okkur samningsstöðuna ef hver og einn ætti að semja um kaup og kjör í stað þess að stéttarfélög geri kjarasamninga,“ segir Drífa í skoðun sinni sem birtist í Fréttablaðinu. Tjáir Drífa sig um málefnið sem lið í 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi.
„Kúgun á vinnumarkaði birtist með ýmsum hætti og ég minnist þess þegar konur í hreyfingunni komu saman í miðri #metoo bylgju. Margar höfðu upplifað áreitni á vinnustað en það sem mörgum þótti sárast var þegar gengið var fram hjá þeim við mikilvægar ákvarðanir er vörðuðu stöðu viðkomandi, laun o.fl. Niðurlægingin sem í því fólst var hvað sárust,“ segir Drífa.
Konur sem búa við kúgun í launum sæta oft hvað mestu ofbeldi
Segir hún þær konur sem búa við mestu kúgunina í launum oft vera þær sem sæta hvað mestu ofbeldi á vinnustaðnum. Frásagnir kvenna af erlendum uppruna og það að nafnlausar konur hafi treyst sér til þess að segja frá sé til vitnis um það.
„Með því að ljá konum rödd sem ekki treystu sér til að koma fram undir nafni þá var hægt að opinbera þeirra bitru reynslu á vinnumarkaði. Það segir töluvert um í hvaða stöðu viðkvæmir hópar á vinnumarkaði eru og hver hættan er þegar fólk vogar sér að standa á rétti sínum.
Að fá þau skilaboð í launaumslaginu að þú sért lítils virði er líka skilaboð um að það sé í lagi að gera lítið úr þér. Þú ert undirtylla,“ segir Drífa og bætir við að í þeirri stöðu sé fólk síður líklegra til þess að kæra eða segja frá.
„Þeim sem finnst í lagi að undiroka aðra í launum eru líklegri til að sýna virðingarleysi á öðrum sviðum. Karlkyns yfirmaður sem finnst að konur eiga að fá minna í launaumslagið en karlar er ekki líklegur til að bera virðingu fyrir konum og þeirra framlagi á vinnustaðnum og í samfélaginu. Misrétti í launum og ofbeldi á vinnustað er þannig nátengt,“ segir hún.
Þá segir Drífa baráttu kvenna fyrir jafnrétti í launum vera baráttu þeirra fyrir virðingu og frelsi frá hvers konar ofbeldi.
„Stéttarfélög hafa þá skýru ábyrgð að berjast fyrir bættum kjörum og góðum starfsskilyrðum en það er ekki fyrr en á síðari árum að frelsi frá áreitni og ofbeldi er orðið vinnuverndarmál. Ný samþykkt Alþjóða vinnumálastofnunarinnar gegn ofbeldi og áreitni í heimi vinnunnar boðar vatnaskil í baráttunni og nú bíðum við þess að samþykktin verði fullgild hér á landi.“