Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að frjálsa markaðnum sé alveg sama um húsnæðisöryggi fólks. Hún segir að eini tilgangur stórra fjárfestingarsjóða eins og Gamma sé að mjólka fasteignamarkaðinn eins mikið og mögulegt er.
„Við höfum alltaf sagt þetta. Það er ekki hægt að láta húsnæðisöryggi í hendurnar á markaðnum. Það að hleypa þessu öllu lausu verður til þess að svona fjárfestar koma inn á markaðinn sem eru ekki með það að sjónarmiði að fólk búi í öruggu og góðu húsnæði á sæmilegu verði, heldur einfaldlega ætla að mjólka eins mikið og mögulegt er. Ofmeta sjálfa sig og ofmeta aðra, öðrum til skaða. Þetta er enn ein staðfestingin á því að hinn frjálsi markaður; honum er alveg sama um húsnæðisöryggi fólks,“ sagði Drífa í Vikulokunum á Rás Eitt í morgun.
Fjárfestingarsjóðurinn Gamma hefur verið mikið í fréttunum undanfarið og hefur til dæmis Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagt að hann vilji lögreglurannsókn á starfsemi fyrirtækisins. Gamma, sem er í eigu Kviku banka, hefur tapað milljörðum á mjög stuttum tíma. Ný stjór fyrirtækisins er nú að fá utanaðkomandi sérfræðinga til að fara yfir málefni sjóðsins og á þá sérstaklega að skoða fyrirtækið Upphaf, en það er í miklum greiðsluerfiðleikum. Upphaf er með nokkur hundruð íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu. Eignir sjóðsins voru metnar á um 4.400 milljónir um áramótin, en samkvæmt nýju verðmati eru eignir sjóðsins í dag ekki nema 42 milljónir króna. Lífeyrissjóðir landsins hafa tapað stórfé vegna tap sjóðsins.